Halló halló... hvað er að gerast hérna.... að verða mánuður síðan að maður lét í sér heyra!!! Leti leti...
En jæja það sem á daga mína hefur drifið er það að ég er búinn að vera að vinna, vinna og vinna niður í Álveri Alcoa, og er kallinn orðinn Verkstjóri yfir her vaskra drengja frá slóvakíu
... kanski er of gott að segja drengir, þar sem að sá yngsti er 49. ára. Enginn þeirra talar stakt orð í ensku og hvað þá íslensku, einn er mellufær í austurrýska þýsku, og ég er mellufær á þýska þýsku... þannig tjáum við okku, enn það gengur frekr illa þar sem að þetta eru ekki okkar móðurmál og munurinn á þessum málum er líkt og danska vs norska.... eða e-h! En engu að síður þá eru þetta gæðasálir, Enn það er alveg djöfulli einmannalegt að hafa engann til að tala við 
Svo voru smalamenskur um þarsíðustu helgi... það gekk ágætlega, læt vera um skemmtanagildið!!!
En snemma í mánuðinum fórum við Sverrir (sem nú er í Japan), í roadtrip til Reykjavíkur, farkosturinn var ekki af verri endanum, splunkunýr Ford Explorer af fínustu gerð! Enda vöktum við athygli þegar við komum inn í Selfoss, og vorum stöðvarðir af lögreglunni til að athuga hvaða dópsalar eða ríkisbubbar sem voru að koma úr veiði vaæru þarna á ferð!!! Í Reykjavík fór ég síðann á tónleika með Chris Cornell... Sema var algjör snild!!!
Október Comming!!!
Boggi Out